Já ég ætti að fá verðlaun fyrir svona mikið og skemmtilegt blogg

ennn allavena það er nú ekkert búið að vera neytt spennandi í gangi
hjá mér er búin að vera veik

og svo vildi svo skemmtilega til að
ég fékk einhvern helvítis vírus í augun og varð hálf blind! annað
auga lokaðist allveg og vesen og þar sem þetta er bráðsmitandi og
ég vinn á leikskóla þá mátti ég ekki fara í vinnuna í viku...
en það er nú fullt skemmtilegt búið að ske líka.. við frænkurnar
kíktum saman á djammið byrjuðum á því að fara í innflutningspartý
hjá Karen fengum geggjaðan mat og fullt af kokteilum..geggjað
gott.. fórum í drykkjuleik úr friendsspilinu og voða gaman... svo
fór ég núna um helgina á stelpudjamm kíktum fyrst heim til Unnar að
spila fórum í pakk og það var ekkert lítið gaman!!! skemmtilegt
spil mæli með því

eftir það var ferðinni heitið í partý til
Íbba frænda Guðnýjar og svo var farið niðrí bæ og satt að segja er
langt síðan ég skemmti mér svona vel niðrí bæ fórum á Sólon og það
var bara geggjað gaman!
það er djammtímabil framundan og hlakka ég bara til ég var ekki
búin að djamma tvær helgar í röð og ég bara hálf saknaði þess

en
næsta helgi er ferðinni heitið á pravda í ammli til hennar Billu
fjörfjör og svo er ég að fara tvær helgar í röð í
bústaðardjamm


fyrst fer ég með stelpunum semsagt ég,
Guðný Eygló, Berglind og Unnur og það eiga kannski einhverjir eftir
að bætast við hópinn og ég get allveg ímyndað mér fjörið sem verður
hjá okkur!!!!

erum búnar að ákveða margt sem tengist heitum
potti en ég segi ekki meir en það

og svo helgina eftir það er ég
að fara með frænkunum í sumarbústað og verður það nú ekki minna
fjör

við erum svo kreisí saman og það verður mikið vín í
þessum bústuðum

... vín, heitur pottur og kósíness!!
ennnn ég ætlaði bara að skrifa smá og er komin með ritgerð híhí
þannig ég segi bara Adios amigos

og hér er mynd af mér og Guðný bara ykkur til ánægju hehe